Um Leiðakerfi neytenda

Vefgáttin Leiðakerfi neytenda er byggð upp sem „smellikerfi“ til að takmarka textann sem þarf að lesa til að finna út úr hlutunum. Þú velur því málaflokk og heldur áfram í kerfinu með því að smella á valkosti þangað til þú hefur fengið þá aðstoð sem þú sóttist eftir. Þú getur alltaf bakkað til baka eða farið annað með því að velja málaflokk á ný.

Ef þú þekkir þegar rétt þinn og vilt eingöngu fá aðstoð með að skrifa kvörtunarbréf til seljanda eða kvarta hjá réttri kvörtunarnefnd, smellir þú á tenglana neðst á síðunni.

Leitast er við að hafa allar upplýsingar réttar og nákvæmar. Ef mikið er í húfi ber þó alltaf að leita persónulegrar aðstoðar.

Vefgáttin er unnin á vegum talsmanns neytenda. Talsmanninum ber samkvæmt lögum að standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og stuðla að aukinni neytendavernd. Í meginatriðum er hlutverk hans þríþætt, þ.e.:

  • varðstaða um hagsmuni og réttindi neytenda,
  • kynning á réttarreglum um neytendamál og
  • síðast en ekki síst áhrif til úrbóta á sviði neytendamála.

Verkefninu var veitt fjármagn af forsætisráðuneyti, sem lið í „upplýsingasamfélaginu“, og af viðskiptaráðuneyti og hefur notið örláts stuðnings Neytendasamtakanna.