Sáttaumleitun sýslumanns

Í mörgum tilfellum er möguleiki á að vísa mál, sem ekki hefur verið tekið fyrir í dómstól, til sáttaumleitana sýslumanns. Jafnt einstaklingar sem lögaðilar geta óskað sáttaumleitana sýslumanns. Sáttaumleitanir eru án kostnaðar fyrir aðila.

Þegar sáttaumleitunum er vísað til sýslumanns skal láta honum í té þau málsgögn sem þörf krefur. Sýslumaður kveður síðan aðila á sinn fund og reyna með þeim sættir. Heimilt er að óska eftir að farið verði með upplýsingar í trúnaði.

Sýslumaður fellir niður sáttaumleitanir ef sáttafundur er ekki sóttur af hendi beggja aðila eða þegar hann telur annars sýnt að þær beri ekki árangur. Ef sátt tekst fyrir sýslumanni felur hún í sér lok dómsmáls og er bókuð í sérstakri gerðabók. Ef sátt tekst að nokkru leyti en ekki öllu má halda málið áfram fyrir dómi.

Aðilar mega semja um til hvaða sýslumanns þeir leita með sáttaumleitun, en að jafnaði fer hún fram í því umdæmi sem einhver aðila eiga lögheimili eða þar sem ágreiningur stofnaðist.

Senda beiðni til sýslumanns um sáttaumleitun.