Smelltu á nafn úrskurðarnefndar til að fá fullar upplýsingar úm nefndina og hvernig það má leggja mál fyrir hana.
fjallar um ágreining um bótaskyldu, þar með talið sök og sakarskiptingu milli neytenda og vátryggingafélags.
fjallar um ágreining viðskiptamanna við lánastofnanir (til dæmis viðskiptabanka eða sparisjóð), verðbréfafyrirtæki, eða dótturfyrirtæki þessara fjármálafyrirtækja. Einnig fjallar nefndin um ágreining um yfirfærslur á milli viðskiptareikninga milli landa. Fjármálaeftirlitið tekur við málskotum.
tekur fyrir kærur um ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar. Sá sem á verulegra hagsmuna að gæta getur kært hvort heldur er málsmeðferð eða efni ákvörðunar. Kæra þarf að berast nefndinni innan fjögurra vikna frá því að kæranda varð kunnugt um ákvörðunina.
gefur álit á ágreiningi um réttindi og skyldur um neytendakaup, lausafjárkaup og þjónustukaup.
fjallar um kvartanir vegna ferða sem skipulagðar eru af ferðaskrifstofum í samtökum ferðaþjónustunnar.
fjallar um kvartanir vegna fasteigna og kaupa á þjónustu iðnaðarmanna.
fjallar um kvartanir vegna þjónustu efnalauga og þvottahúsa.
fjallar um ágreining milli lögmanns og umbjóðanda hans um þóknun. Einnig um kvörtun á hendur lögmanni vegna háttsemi.
fjallar um ágreining milli eigenda í fjöleignarhúsum, milli leigjenda og leigusala íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og milli leigusala og leigutaka lóða undir hús í frístundabyggð.
fjallar um kvartanir vegna kaupa á þjónustu tannlækna.
fjallar um ágreining um ákvarðanir stjórnar Viðlagatryggingu Íslands um greiðsluskyldu og fjárhæð vátryggingabóta.