Neytendur sem vilja kvarta yfir vöru eða þjónustu eiga fyrst að snúa sér til viðkomandi seljanda (sjá kvörtunaraðstoð). Ef ekki næst samkomulag við seljandann, þ.e. ef seljandinn tekur ekki mark á kvörtuninni (þú hefur t.d. fengið skriflega höfnun frá honum eða ekki fengið svar), getur þú:
- fengið aðstoð hjá viðkomandi eftirlitsaðila.
- fengið aðstoð hjá Leiðbeiningu- og kvörtunarþjónustunni hjá Neytendasamtökunum.
- í mörgum tilvikum skotið málinu til úrskurðarnefndar. Þetta er ódýrt og fljótlegt úrræði, en neytandinn þarf yfirleitt að greiða málskotsgjald til að mál hans sé tekið fyrir og er það mishátt eftir nefndum. Vinni neytandi mál fyrir nefnd að hluta eða öllu leyti, fær hann málskotsgjaldið endurgreitt frá seljanda. Sé neytandi ósáttur við úrskurðinn getur hann haldið áfram með málið til dómstóla.
- með samþykki hins aðilans vísa máli til sáttaumleitana sýslumanns.
- fengið aðstoð hjá aðilum sem veita almenningi ókeypis lögfræðiráðgjöf eða hjá lögmanni og e.t.v. vísa máli til dómstols.