Orðskýringar

A Á B C D E É F G H I Í J K L M N O Ó P Q R S T U Ú V X Y Ý Z Þ Æ Ö 
ADSL
ADSL (Asymmetric Digital Subscriber Line) er gagnaflutningsþjónusta sem nýtir hefðbundnar símalínur til háhraðagagnaflutninga inn á Netið eða fyrirtækjanet. ADSL felur í sér sítengingu við Netið.

Afborgun
Afborgun er greiðsla af láni, t.d. bankaláni.

Afborgunartími
Afborgunartími er sá tími sem greiða þarf af láni þangað til það er allt greitt.

Afföll
Afföll eru mismunur á nafnverði verðbréfs með vöxtum og verðbótum annars vegar og söluverði (markaðsverði) þess hins vegar. Afföll eru mismunandi eftir því hver ávöxtunarkrafan er á verðbréfamarkaði. Afföll á 5% þýða að 950.000 kr. fást við sölu á nýútgefnu húsbréfi að uppreiknuðu verði 1.000.000 kr.

Afskráning
Afskráning felst í því að bíll er tekinn af skrá. Þá þarf ekki að borga tryggingar og önnur gjöld af honum. Bílnúmerinu er skilað og ekki má keyra bílinn.

Afskrift
Afskrift er lækkun á verðgildi einhvers vegna slits, úreldingar o.þ.h.

Ábyrgð
1) Með því að ganga í ábyrgð fyrir einhvern sem tekur lán lofar ábyrgðarmaðurinn að borga lánið til baka ef sá sem tók það getur ekki greitt það sjálfur. 2) Vara er í ábyrgð hafi seljandi eða framleiðandi sérstaklega lýst yfir ábyrgð og gildir hún með þeim skilyrðum sem fram koma í yfirlýsingunni og í auglýsingum tengdum henni. Ábyrgð á alltaf að veita kaupanda meiri rétt en hann hefur samkvæmt lögum, til dæmis lengri kvörtunarfrest, að varan hafi tiltekna eiginleika eða að hana megi nota með ákveðnum hætti.

Bankaávísun
Bankaávísun er ávísun fyrir ákveðinni fjárhæð sem banki gefur út.

Bankakort
Bankakort er greiðslukort sem hægt er að nota til að taka út pening af bankareikningi eða til greiðslu í banka eða sparisjóði.

Bankaþjónusta
Bankaþjónusta er öll sú þjónusta sem bankar og sparisjóðir veita.

Blátönn
Blátönn (bluetooth) er tækni sem gerir notanda kleift að tengjast þráðlaust farsímum, fartölvum og öðrum tækjum.

Breiðbandið
Breiðbandið er tíðnisvið notað fyrir verkefni sem þurfa vítt tíðnibil. Breiðbandinu má skipta í nokkur mjórri svið og er þá unnt að nota hvert svið í mismunandi tilgangi (sjónvarp, útvarp, Netið) eða fyrir ólíka notendur.

Debetkort
Debetkort er greiðslukort tengt bankareikningi. Þegar debetkort er notað til þess að greiða fyrir vörur og þjónustu eða til þess að taka út peninga í hraðbanka dregst upphæðin strax frá innistæðunni á bankareikningnum.

Dómari
Dómari er lögfræðimenntaður embættismaður sem stjórnar réttarhöldum og kveður upp dóma.

Dómstóll
Dómstóll er opinber stofnun þar sem réttarhöld fara fram og dómar eru kveðnir upp.

Dómur
Dómur er ákvörðun sem dómarar taka um mál fyrir rétti og er dómurinn sem þeir kveða upp niðurstaða réttarhaldanna.

Dráttarvextir
Dráttarvextir bætast við skuld sem er ekki greidd á réttum tíma. Dráttarvextir reiknast sem ákveðið hlutfall af skuldinni fyrir hvern dag sem líður frá gjalddaga til greiðslu.

Eindagi
Eindagi á skuld, t.d. reikningi fyrir vörur eða afborgun af láni, er allra síðasti dagurinn sem maður getur greitt hana án þess að dráttarvextir bætist við.

Endurgreiðsla
Endurgreiðsla felst í því að maður fær pening greiddan til baka.

Erfðabreytt matvæli
Erfðabreytt matvæli eru framleidd úr erfðabreyttum lífverum eða afurðum þeirra og innihalda prótín eða erfðaefni tilkomið vegna erfðabreytinga.

Fasteign
Fasteign er húsnæði eða önnur eign sem er ekki hægt að færa úr stað.

Fasteignalán
Fasteignalán er lán sem fólk getur fengið hjá lánastofnunum til þess að kaupa fasteign.

Fasteignaveðbréf
Fasteignaveðbréf er skuldabréf með veði í fasteign.

Fjarsala
Fjarsala er sala á vöru eða þjónustu án þess að neytendi og seljandi hittist, t.d. símasala, sala úr vörulista eða á Internetinu.

Gerðardómur
Gerðardómur er úrskurðaraðili sem deiluaðilar eru sammála um að leggja ágreiningsefni sín fyrir.

Gjald
Gjald er föst upphæð fyrir t.d. ákveðna þjónustu. Gjald er oftast fyrirfram ákveðin upphæð og er ekki það sama og kostnaður við þjónustuna.

Gjalddagi
Gjalddagi á skuld, t.d. reikningi fyrir vörur eða afborgun af láni, er dagurinn þegar maður á að greiða hana (sbr. eindagi).

Gjaldeyrir
Gjaldeyrir eru peningar í erlendum gjaldmiðli.

GPS
GPS (Global Positioning System) er staðsetningarkerfi sem byggist á móttöku merkja frá gervitunglum í sérstaka GPS-móttakara.

Greiðsla
Greiðsla er borgun, t.d. fyrir vörur eða þjónustu.

Greiðslukort
Greiðslukort er kort notað til þess að greiða fyrir vörur og þjónustu eða taka pening út af bankareikningi. Greiðslukort getur verið debetkort eða kreditkort.

Greiðslumat
Greiðslumat er mat sem lánastofnun framkvæmir á getu væntanlegs lántakanda til að greiða tiltekið lán, t.d. við húsnæðiskaup. Við greiðslumat eru t.d. athugaðar tekjur, skuldir og eignir.

Greiðsluseðill
Greiðsluseðill er tilkynning um að maður eigi að greiða ákveðna upphæð á tilteknum degi, t.d. afborgun af láni eða greiðslu fyrir rafmagn og hita. Ef skuldin er borguð í banka eða sparisjóði er greiðsluseðillinn stimplaður og gildir sem kvittun fyrir greiðslunni.

Greiðslutímabil
Greiðslutímabil er tíminn sem greitt er fyrir, t.d. er greiðslutímabil launa yfirleitt einn mánuður.

Gögn
Gögn eru upplýsingar, t.d. skjöl, sem eru notaðar í ákveðnum málum. Gögn geta t.d. verið fylgigögn eða sönnunargögn.

Hugbúnaður
Hugbúnaður er tölvuforrit, einkum safn forrita, t.d. stýribúnaður og ritvinnsla.

Húsaleigbætur
Húsaleigubætur eru styrkur sem leigutaki getur fengið frá sveitarfélagi eftir ákveðnum reglum til að greiða hluta af leigu fyrir húsnæðið sem það býr í.

Húsbréf
Húsbréf eru skuldabréf með veði í fasteign.

Húsgöngusala
Húsgöngusala er sala á vöru og þjónustu sem seljandi skipuleggur utan fastrar starfsstöðvar sinnar og neytandi hefur ekki óskað eftir, svo sem á heimili neytenda og annars konar farandsala.

Iðgjald
Iðgjald er greiðsla fyrir vátryggingu eða til lífeyrissjóðs.

Inneign
Inneign er krafa sem maður á inni, t.d. a) hjá fyrirtæki (inneignarnóta), b) hjá opinberri stofnun þegar búið er að greiða meira en maður skuldar, t.d. í skatt eða c) í banka, þ.e.a.s. peninga sem maður hefur lagt inn á bankareikning til geymslu.

Innheimta
Innheimta er krafa um að skuld verði greidd.

Innlánsvextir
Innlánsvextir eru vextir sem bankinn greiðir fyrir inneign á bankareikningi.

ISDN
ISDN (Integrated Services Digital Network) er gagnaflutningsþjónusta sem byggist á stafrænum gagnaflutningi um símalínur.

Kaup
Kaup er samningur á milli kaupanda og seljanda um að kaupa/selja t.d. vöru eða þjónustu.

Kreditkort
Kreditkort er greiðslukort sem hægt er að greiða með fyrir vörur og þjónustu og nota til þess að taka út peninga í hraðbönkum. Greiðslur verða skuldfærðar einu sinni á mánuði.

Kvittun
Kvittun er skrifleg staðfesting á því að maður hafi keypt eitthvað og greitt fyrir það.

Kvörtunarfrestur
Hámarksfrestur neytanda til að leggja fram kvörtun um galla. GÖLLUÐ VARA - Almennur kvörtunarfrestur er tvö ár. Ef vörunni er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um vörur, s.s. ísskápar, þvottavélar eða leðursófar, er fresturinn fimm ár. Þetta þýðir að þú getur kvartað til seljanda yfir galla, sem þú átt ekki sjálfur sök á, innan þessara tímamarka. Hafi seljandi gert við galla en sami galli komið upp aftur seinna lengist fresturinn. Þú skalt tilkynna seljanda eins fljótt og mögulegt er eftir að þú uppgötvar galla. Tímafresturinn fyrir tikynningu er ekki fastákveðinn, en ef þú kvartar innan tveggja mánaða frá því þú verður galla var telst það alltaf innan tímamarka. GÖLLUÐ ÞJÓNUSTA - Viljir þú kvarta yfir þjónustu þarftu að tilkynna seljanda innan sanngjarns frests frá því að galli í þjónustunni uppgötvaðist. Hver tímafresturinn fyrir tillkynningu er grundvallast af aðstæðum á hverju sinni. Almennt er lokafresturinn til að kvarta tvö ár frá afhendingu þjónustunnar

Kæra
Kæra er formleg ósk um að tiltekið mál verði rannsakað af lögreglu og e.t.v. afgreitt af dómstólum.

Leiga
Leiga er greiðsla fyrir afnotarétt.

Leigusali
Leigusali er sá sem leigir eitthvað út til annarra (til leigjanda/leigutaka).

Lögfræðingur
Lögfræðingur er maður með háskólapróf í lögfræði.

Löggilting
Löggilting er formleg staðfesting á að eitthvað sé í samræmi við lög eða hafi lagalegt gildi. Sum starfsheiti eru löggilt og það þýðir að enginn má t.d. kalla sig lækni, hjúkrunarfræðing, múrara eða rafvirkja nema hafa menntun og réttindi til þess.

Lögheimili
Lögheimili er staður þar sem maður á heima samkvæmt þjóðskrá, jafnvel þótt maður dvelji annars staðar í lengri eða skemmri tíma.

Lögmaður
Lögmaður er lögfræðingur með réttindi til að flytja og verja mál fyrir dómstólum.

Markaðssetning
Í markaðssetningu felast þeir þættir sem ákvarða hvernig vöru eða þjónustu er komið á framfæri. Umbúðir og auglýsingar eru t.d. hluti af markaðssetningu.

MP3
MP3 (MPEG 1 Audio layer 3) er gagnaþjöppunarsnið fyrir hljóðskrár, þ.e.a.s. tölvuforrit sem þjappar saman hljóði og auðveldar flutning skráa milli tölva.

Mælieiningarverð
Mælieiningarverð er verð vöru miðað við ákveðna þyngdar- eða rúmmálseiningu, svo sem kíló, lítra, eða metra. Mælieiningarverði er ætlað að auðvelda neytendum að gera verðsamanburð á sölustað, en segir ekkert um gæði varanna.

Nafnvextir
Nafnvextir eru vextir án tillits til verðþróunar (verðbólgu).

Nafnvirði
Nafnvirði er upphaflegt, skráð verð, t.d. á hlutabréfi. Markaðsverðmæti hlutabréfs fæst með því að margfalda nafnverðið með gengi hlutabréfsins.

Nauðasamningur
Nauðasamningur er samningur milli skuldara, sem á í greiðsluerfiðleikum, og meirihluta lánadrottna hans um greiðslu skulda eða eftirgjöf á þeim.

Nauðungarsala
Nauðungarsala á eign, t.d. íbúð eða bíl, fer fram ef eigandinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar og er neyddur til að láta af hendi eign til þess að greiða upp í skuldir.

Neytandi
Neytandi er einstaklingur (þ.e.a.s. ekki lögaðilar á borð við fyrirtæki eða félagasamtök) sem kaupir hlut eða þjónustu til einkanota, en ekki sem hluta af atvinnustarfsemi, gegn endurgjaldi af seljandi sem hefur atvinnu sína af sölu (en ekki af einstaklingi).

Neytendavernd
Neytendavernd lýtur að vernd á hagsmunum neytenda gagnvart seljendum vöru og þjónustu, t.d. varðandi markaðssetningar, skilmála, hollustu og öryggi.

Ófrávíkjanlegur
Þegar lög eru ófrávíkjanleg verður að fara eftir þeim án undantekninga.

Ógilding
Ógilding á einhverju felst í því að það er fellt úr gildi, t.d. felur ógilding samnings í sér að hann gildir ekki lengur.

Ókeypis
Ef eitthvað er ókeypis þá kostar það ekki neitt. Auglýsingar þar sem slík orð eru notuð eru villandi þurfi neytendur að greiða fyrir aðra vöru eða þjónustu til að fá "ókeypis" vöruna/þjónustuna.

Ólögráða
Fólk sem er ólögráða hefur ekki full réttindi t.d. til að kjósa eða ráða yfir eigin fjárhag. T.d. eru börn og unglingar undir 18 ára aldri ólögráða.

Persónuvernd
Persónuvernd miðar að því að setja reglur um notkun persónuupplýsinga og að hafa eftirlit með notkun þeirra til þess að koma í veg fyrir að upplýsingarnar séu misnotaðar.

Raunávöxtun
Raunávöxtun er ávöxtun umfram verðbólgu.

Raunvextir
Raunvextir eru raungildi vaxta að teknu tilliti til verðlagsþróunar.

Ríkisvíxill
Ríkisvíxill er óverðtryggt ríkisskuldabréf til skemmri tíma en árs.

Samningur
Samningur felur í sér samkomulag um eitthvað. Einhverjir hafa samið annaðhvort munnlega eða skriflega um eitthvað.

Sjálfbær þróun
Sjálfbær þróun er þróun þar sem þörfum okkar í dag eru mætt án þess að við stefnum möguleikum komandi kynslóða á að mæta þörfum sínum í voða.

Sjálfskuldarábyrgð
Sjálfskuldarábyrgð einkennist af því að unnt er að ganga beint að ábyrgðarmanni til greiðslu skuldar á þess að leita fyrst fullnustu hjá aðalskuldaranum.

Skaðatrygging
Skaðatrygging er vátrygging sem ekki er persónutrygging, þ.e.a.s. trygging gegn tjóni eða eyðileggingu á hlut eða hagsmunum eða gegn skaðabótaábyrgð eða kostnaði.

Skrifleg gögn
Þú þarft að geta sýnt fram á málavexti þinn skriflega. Úrskurðarnefndir kalla ekki fyrir vitni en byggja úrskurði sína eingöngu á skriflegum gögnum. Ef orð stendur gegn orði milli þín og seljandans og þú hefur engin gögn til að sýna fram á þinn rétt eru líkur á að kvörtuninni verði vísað frá. Þetta þýðir að ef seljandinn t.d. neitar að hafa selt þér vöruna/þjónustuna þarft þú að geta sýnt fram á hvar og hvenær þú keyptir hana, hvað hún kostaði og að hún sé greidd. Þess vegna er ráðlegt að geyma alltaf kvittanir, greiðsluyfirlit o.þ.h. Þú skalt einnig geyma afrit af bréfum milli þín og seljandans sem og viðgerðarnótur eftir því sem við á.

Skuldabréf
Skuldabréf er skrifleg yfirlýsing um að maður hafi tekið lán að ákveðinni fjárhæð og á að greiða það aftur fyrir tiltekinn tíma og með þeim skilmálum, t.d. vöxtum, sem eru tilgreindir í skuldabréfinu.

Sýslumaður
Sýslumaður sér um lögreglustjórn og aðra stjórnsýslu í ákveðnu umdæmi.

Sönnun
Sönnun er eitthvað sem sýnir fram á að eitthvað sem er haldið fram sé rétt, t.d. að ákveðinn atburður hafi átt sér stað.

Sönnunargögn
Sönnunargögn eru hlutir eða ummerki sem staðfesta það sem sagt er fyrir dómstóli, t.d. myndir, fingraför eða skjöl með upplýsingum.

Tékkareikningur
Tékkareikningur er bankareikningur sem maður getur tekið peninga út af með ávísun eða debetkorti.

Tilboð
Vörur sem eru á tilboði eru á lægra verði en venjulega. Ef gert er tilboð í eitthvað er boðist til að kaupa eða vinna eitthvað fyrir tiltekið verð.

Tollfrelsi
Tollfrelsi felst í því að það þarf ekki að greiða toll af ákveðnum vörum sem fluttar eru til landsins – þær eru því tollfrjálsar.

Tollskýrsla
Tollskýrsla er greinargerð um innflutning á vörum sem þarf að gera á sérstöku eyðublaði og skila til tollstjóra áður en vörurnar eru tollafgreiddar.

Tollur
Tollur er gjald sem er lagt á tollskyldar vörur sem eru fluttar til landsins.

Tryggingartaki
Tryggingartaki er sá sem gerir samning við tryggingafélag um kaup á tryggingu.

Tryggingaskírteini
Tryggingaskírteini er sérstakt skjal frá t.d. tryggingafélagi sem sýnir hvaða tryggingar maður hefur.

Umboð
Umboð er formlegt leyfi til að gera eitthvað fyrir hönd umboðsveitandans.

Upplýst samþykki
Samþykki sem veitt er skriflega af fúsum og frjálsum vilja.

Úrræði
Úrræði er leið til lausnar á ákveðnum málum.

Útrunninn
Ef matvara er útrunnin þá er síðasti dagur sem má selja matinn liðinn. Ef frestur er útrunninn þá er tíminn sem maður hafði til þess að gera eitthvað eða skila einhverju liðinn.

Vaxtabætur
Vaxtabætur eru, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, greiddar af ríkinu til þeirra sem hafa tekið lán til íbúðarkaupa.

Vaxtamunur
Vaxtamunur er munurinn á milli innláns- og útlánsvaxta lánastofnana.

Veð
Veð er trygging fyrir láni. Húsnæðislán eru t.d. oftast tryggð með veði í húsinu eða íbúðinni.

Veðbréf
Veðbréf eru skuldabréf með veði í eign.

Verðbréf
Verðbréf er samheiti yfir skjöl sem hafa ígildi peninga, eins og t.d. hlutabréf, skuldabréf og aðrar kröfur.

Verðtrygging
Verðtrygging miðar að því að tryggja verðgildi fjárskuldbindinga með viðmiðun við ákveðna vísitölu, þannig að verðgildi t.d. skuldar breytist í samræmi við breytingu á vísitölunni.

Vextir
Vextir eru reiknaðir sem ákveðin prósenta af peningafjárhæð fyrir ákveðið tímabil, t.d. í eitt ár.

Viðurkenndur
Ef eitthvað er viðurkennt t.d. af stjórnvöldum þá er það opinberlega leyft eða samþykkt.

Viðurlög
Viðurlög eru ákvæði um refsingu fyrir brot á lögum eða reglum.

Virðisaukaskattur
Virðisaukaskattur (VASK, VSK eða VAT fyrir enska heitið value added tax) er skattur lagður á sölu þjónustu og varnings. VASK-urinn er óbeinn skattur sökum þess að skatturinn er innheimtur af seljanda vöru eða þjónustu en ekki þeim sem borgar skattinn.

Vistvænn
Vistvænt er það sem ekki spillir eða mengar náttúru eða lífríki.

Vísitala
Vísitala er mælikvarði sem sýnir breytingar á verðgildi peninga á tilteknu tímabili. Vísitala neysluverðs mælir breytingar á verðlagi vöru og þjónustu og er notuð sem mælikvarði á breytingar á kostnaði við að framfleyta meðalfjölskyldu.

Víxill
Víxill er sérstök tegund af skuldaviðurkenningu sem staðfestir að sá sem tekur lán hjá einhverjum ætli að greiða það til baka á ákveðnum degi.

Vottfestur
Skjal sem er vottfest hefur verið undirritað af vottum til staðfestingar.

Vottorð
Vottorð er skrifleg yfirlýsing sem er notuð til þess að staðfesta eitthvað, t.d. heilbrigðisvottorð eða hjúskaparvottorð.

Vottur
Vottur er vitni að einhverju, t.d. því að rétt manneskja hafi skrifað undir pappíra og að allt hafi farið rétt fram, og staðfestir það með undirskrift sinni.

Þinglýsing
Þinglýsing skjala miðar að því að skrá þau opinberlega til þess að tryggja og vernda réttindi þeirra sem skjölin varða, t.d. eignarrétt á landi eða fasteign.

Þjónustugjöld
Þjónustugjöld hjá fyrirtækjum eða stofnunum eru gjöld sem eru innheimt fyrir ákveðna þjónustu.