Í leiðakerfinu er hægt að nálgast upplýsingar og kanna rétt sinn (sjá málaflokka til vinstri). Ef þú þekkir þegar rétt þinn en vantar aðstoð getur þú nálgast hana hér. Til eru sérsniðin bréf fyrir ýmis tilvik sem upp geta komið.
Skref 1
Hafðu samband við seljandann
Byrjaðu alltaf á að hafa samband beint við seljanda/leigusala þegar vandamál kemur upp til að athuga hvort ekki sé hægt að komast að samkomulagi um málið. Náir þú ekki fljótlega samkomulagi við seljandann er mikilvægt að hafa samband með sannanlegum hætti, t.d. skriflega (skref 2). Ef t.d. er um gallaða vöru að ræða er öruggast að kvarta með sannanlegum hætti innan tveggja mánaða frá því að þú uppgötvaðir gallann.
Það getur komið að því að þú þurfir að sanna viðskiptin. Einfaldasta leiðin til þess er að sýna pöntun, samning eða kassakvittun. Seljandinn má þó ekki krefjast t.d. kassakvittunar ef þú getur sannað viðskiptin með öðrum hætti.
Skref 2
Hafðu samband skriflega
Skrifleg ábending eða kvörtun til seljandans er oft skilyrði fyrir því að halda málinu til streitu. Til eru sérsniðin bréf fyrir ýmis tilvik sem upp geta komið.
Hér getur þú fengið aðstoð við að skrifa bréf og aðgang að ýmsum upplýsingum.
Skref 3
Enn enginn árangur?
Ef ekki hefur nást samkomulag við seljandann, þ.e. ef seljandinn tekur ekki mark á kvörtuninni (þú hefur t.d. fengið skriflega höfnun frá honum eða ekki fengið svar), getur þú nálgast aðstoð hér.