Gjafabréf og inneignarnótur

Gildistími

Gildistími gjafabréfs og inneignarnótu er 4 ár frá útgáfudegi nema annað sé tekið fram við útgáfu bréfsins, þá gildir það. Samkvæmt þeim leiðbeinandi verklagsreglum um inneignarnótur sem viðskiptaráðuneytið hefur gefið út má stytta gildistíma inneignarnótu í allt að 1 ár. Sé gildistími styttri en 4 ár skal taka það sérstaklega fram við útgáfu inneignarnótunnar sem og á nótunni sjálfri.

Ekki geyma gjafabréf of lengi - þau geta orðið verðlaus áður en þau renna út, t.d. ef seljandinn hættir rekstri eða verður gjaldþrota!

Gjafabréf og inneignarnótur gilda að öðru leyti á þeim forsendum sem um er samið.

Nýr eigandi

Komi nýr eigandi að fyrirtæki gilda gjafabréf og inneignarnótur enn sem fyrr gagnvart þeim sem seljandi framselur verslunarrekstur sinn til. Ef um er að ræða annað (nýtt) fyrirtæki er hins vegar ekki hægt að gera kröfu.

Gjaldþrot

Verði seljandi gjaldþrota á gildistímabili gjafabréfs eða inneignarnótu er hægt að gera kröfu í þrotabúið. Sú krafa er hins vegar sjaldnast mikils virði og kostar töluvert umstang. Komi ný verslun í stað þeirra sem varð gjaldþrota er ekki hægt að gera kröfu á hendur henni þar sem um er að ræða annað fyrirtæki.